Óþolandi óvissa á vettvangi stjórnmálanna skaðar alla.

Þegar mikill vandi steðjar að heilli þjóð skiptir miklu máli að fast sé haldið um stjórnvölinn og ekki sköpuð óvissa og ringulreið á vettvangi stjórnmálanna. Við Íslendingar stöndum frami fyrir slíku ástandi um þessar mundir.  Óvissa í stjórnmálum til viðbótar við erfið viðfangsefni  í efnahagsmálum  dregur kraft og framtak úr þjóðinni og eykur vandamálin sem við er að glíma.  

Í kjölfar bankahrunsins blasa við óleyst  verkefni   um allt þjóðfélagið.  Það virðast flestir vera þeirrar skoðunar að bankanna þurfi að endurreisa  þannig að þeir geti þjónað viðskiptavinum sínum með eðlilegum hætti .  Það þarf markvissar aðgerðir sem gera heimilum kleyft að taka á sínum vanda .  Fullyrða má að aðgerð  sem mun koma öllum landsmönnum til góða er lækkun vaxta . Það á jaft við heimilin sem og atvinnufyrirtækin.   Margir erlendir seðlabankar hafa lækkað vexti  til að örva eftirspurn í sínum hagkerfum. Vísbendingar eru um að verðbólgan sé á hraðri niðurleið, og öll tilefni til þess  að byrja lækkun vaxta hér hjá okkur.  Það mun hafa jákvæð áhrif og hvetja til framtaks og umsvifa. 

Fyrir meira en mánuði síðan taldi bankastjórn Seðlabankanka tímabært að hefja  lækkun vaxta.  Framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins lagðist gegn því vegna tímabundinnar óvissu  í stjórnmálum,  en þá stóðu ríkisstjórnarskipti fyrir dyrum.  

Sjá :http://sedlabanki.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=6792

Óvissan er ekki að minnka.  Ríkisstjórnin getur ekki tekið af skarið um tímasetningu kosninga  og þingrof.  Eins er óljóst  hvaða frumvörp sem skipta fyrirtækin og heimilin raunverulega máli verða afgreidd  áður en þingið fer heim. 

Stjórnmálakreppan er orðin okkur dýr .  Minnkum óvissu og hefjum vaxtalækkunarferilinn. Það nýtist okkur öllum.

 

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband